Svakalega var flott hjá henni ræðan á Austurvelli í dag!!! Ég komst ekki á fundinn í þetta skiptið en hlustaði í útvarpinu og ég var öskrandi og steytandi hnefann út í loftið yfir ræðunni hjá henni.
Ég vil meira svona....
vista-blogga-senda blogg
tilgangslaust blaður um allt og ekki neitt
Svakalega var flott hjá henni ræðan á Austurvelli í dag!!! Ég komst ekki á fundinn í þetta skiptið en hlustaði í útvarpinu og ég var öskrandi og steytandi hnefann út í loftið yfir ræðunni hjá henni.
Ég vil meira svona....
![]()
Um leið og ég ákvað að örbylgjupoppa í gær, leiddi ég hugann að því þegar ekki var til örbylgjupopp. Þegar poppið bar alltaf í potti og það var hreint listform að poppa án þess að brenna í botninum. Út frá því fór ég að pæla í því hver uppgötvaði fyrst poppið og hvað hann hefur verið ánægður en jafnframt svekktur yfir því að eiga ekki salt. Ég ákvað því að spurja vinkonu mína Wiki um sögu poppsins:
Indjánar (frummbyggjar) í Ameríku uppgötvuðu fyrst poppið og héldu að popphljóðið væru reiðir guðir að koma upp úr pottinum. Í kreppunni miklu 1929 varð popp mjög vinsælt því það var svo ódýrt og því var það lyftistöng fyrir kornbændur á erfiðum tímum. Hvernig popp poppast er allt of flókið fyrir þetta blogg því þetta er ekki tækniblogg takk.
Popp er oft flokkað eftir lögun
Já, það er fiðrildatýpan og sveppatýpan og fiðrildatýpan á gefa betri tilfinningu í munni. Sveppatýpan er ekki jafn viðkvæm og fiðrildið og er því oftar í pakkapoppi.![]()
Stærsta poppkúla í heimi var poppuð í Illinois 2006. Hún var 1550 kíló ...sæll!
Þess má geta að á meðan ég var að leita að mynd af stærstu poppkúlunni komst ég að eftirfarandi:
Það er til síða með ruslfæðisfréttum
Það er ekki bara til stærsta popp í heimi ónei...það er líka til stærsta diskókúla í heimi!!!!!
Þetta var nú skemmtilegt fannst ykkur ekki :)))
...finnst ykkur ekki?
Ég er margoft síðasta mánuðinn búin að hugsa skemmtileg blogg um hitt og þetta sem maður heyrir og sér þessa dagana en ég hef einhvern veginn ekki komið mér í það. Þetta blogg verður því slitrótt með litlum punktum um liðna daga og vikur án réttrar tímaröðunar.
* Drífa vinkona mín kíkti upp á land um daginn en hún á heima í Vestmannaeyjum. Hún er komin með veglega barnabumbu því hún ætlar að verða tvíburamamma með hækkandi sól. Mér fannst mjög gaman að ná að hitta hana og fara með henni út að borða og ræða um heima og geima. Ég veit til dæmis núna maður verður ekki bara feitur á meðgöngu heldur feitur með góða húð og fallegt hár, sem er þó bónus. Allavega var Drífa algjör bollubjútí.
* Ég fór á mjög uppbyggjandi fund fólks í hátækni- og sprotageiranum á Nordica á föstudaginn eftir vinnu. Þar voru fundarstjórar Svava Grönfeld og Þórólfur Árnason stjórnuðu fundi og voru frábær en ég heillaðist sérstaklega með Svövu. Fólk eins og hún ætti að vera við stjórnvölinn á tímum sem þessum. Hún gæti farið með okkur öll í skemmtigöngu berfætt yfir hraun og við kæmum glöð til baka, þvílíkur er sannfæringarkrafturinn. Á fundinum voru margar mínútulangar ræður þar sem forstjórar og framkvæmdastjórar sprotafyrirtækja og hátæknifyrirtækja töluðu til framtíðar og lofuðu störfum í sínum fyrirtækjum. Einnig komu fram Össur Skarp og Þorgerður Katrín og sögðu frá framlagi ríkis til sprotafyrirtækja. Valgeir og dj Margeir fengu svo alla í salnum með sér og bjuggu til hringitón sem sagði "núna er tækifærið" Ég gekk af þessum fundi full bjartsýni og með fullt af hugmyndum. Það skrítna er að ég hef varla séð fréttir né umtal af þessum fundi. Það er kannski ekki töff að vera með bjartsýnisfréttir þessa dagana.
* Á laugardaginn birtist auglýsing frá MS þar sem stelpan syngur "á íslensku má alltaf....bla bla bla" kann ekki alveg textann. Í lok auglýsingarinnar kom rödd og sagði "Við óskum öllum landsmönnum gleðilegrar hátíðar árs og friðar". Ég hugsaði: "Huhhhh? Það er nóvember? Er kreppan orðin svona slæm að það er verið að nota 10 ára gamla jólaauglýsingu til að minnka auglýsingakostnað?" Daginn eftir fattaði ég svo að það var dagur íslenskrar tungu. En ég meina come on! Það getur nú varla verið mikið mál að taka út áramótakveðjunaí lokin ;)
* Þennan sama laugardag fór ég á mótmælafund niðri á Austurvelli. Ekki seinna vænna að sýna vilja og skoðun í verki. Ég kallaði þar með öllum honum að ég vildi skipta um stjórn í seðlabankanum og skipta um fólk í fjármálaeftirlitinu og ýmislegt fleira sem ég kallaði eftir. Fundurinn fór vel fram (þaðan sem ég stóð), fólk á öllum aldri úr öllum stéttum. Ég hefði samt viljað sjá meiri baráttu og þá er ég ekki að tala um átök. Ég er meira að tala um öflugri baráttuköll og öskur. Reiðin skein ekki nógu skært út úr fólki....any who, vona að það verði meiri mótmælaköll næstu helgi. Allir að mæta...líka þú!
* Kjarri kúl skrifaði pistil á föstudaginn sem mér fannst einn sá besti í langan tíma. Hér er hann:
Sá vægir sem vitið hefur meira
Einu sinni bjó leigubílstjóri í litlum, köldum bæ. Leigubílstjórinn passaði vel upp á að halda litla leigubílnum sínum alltaf hreinum.
Einu sinni bjó leigubílstjóri í litlum, köldum bæ. Leigubílstjórinn passaði vel upp á að halda litla leigubílnum sínum alltaf hreinum. Broddborgurum bæjarins þótti gaman að spjalla við leigubílstjórann um heima og geima meðan á ökuferðum stóð. Leigubílstjórinn tók starf sitt alvarlega og lagði sig fram um að geðjast herrunum háu. Allt gekk sinn vanagang í litla bænum.
Snemma um haust hreiðruðu bræður um sig í bænum. Annar var risi og hinn var dvergur. Dvergurinn keyrði leigubíl, en sá var fjólublár og ljótur. Dvergurinn vildi bara spjalla um grænar baunir við farþega sína. Íbúar bæjarins þorðu ekki öðru en nýta sér leigubílaþjónustu dvergsins. Þeir voru nefnilega hræddir við risann bróður hans. Risinn átti það til að skvetta náttúrulegum lækningasmyrslum á vegfarendur. Leigubílstjórinn á litla leigubílnum var dapur yfir stöðu mála.
Hann gekk því á fund bræðranna og stakk upp á málamyndun. Dvergurinn myndi horfa á mynd með Cuba Gooding Jr. og í staðinn fengi risinn óheftan aðgang að sundstöðum bæjarins. Allir voru sáttir við þessa lausn.
Við fyrstu sýn virðist þessi litla dæmisaga ekki eiga mikið erindi í dag. En getur verið að ákveðin viska leynist í henni við nánari skoðun?
Svarið er nei. Þessi saga á ekki erindi við neinn, nokkurn tíma. En til að forðast að vera minni maður en flestir aðrir pistlahöfundar þjóðarinnar þessa dagana er bráðnauðsynlegt að rigga upp einhverju sem hljómar eins og hnyttin myndlíking fyrir ástandið. Góðar stundir.
Já nú er upprunninn tími þeirra hæfustu til að lifa af kreppuna og ég hef sett mér að vera ein af þeim. Ég hef einsett mér að hata ekki auðmenn því þeir bara vissu ekki betur greyin (já þeir eru núna bara grey) og auk þess vil ég eyða minni orku í gáfulegri hluti, eins og til dæmis kreppueldamennsku. Ég er í töluðum orðum að gæða mér á Tortola núðlum ala Eva og ég ætla að deila uppskriftinni með lesendum.
Tortola núðlur
Tími: 5 mín
1 pakki núðlusúpa að eigin vali (40-60 kall)
Vatn (ókeypis)
dash af soja
dash af sterku sinnepi (ef það er til)
nokkrar sneiðar af osti
1 tómatur í sneiðum (ef það er til)
*Núðlurnar hitaðar í örbylgju eða með hraðsuðukatli eða á eldavél ef þú býrð svo vel að eiga eina slíka.
* Vatninu hellt af
* Ostinum hrært út í
* Sinnepi og soja bætt við.
* Tómatur skorinn niður og settur út í.
...Voila, tilbúið!
Er þetta ekki alveg magnað viðtal? Ætli honum hafi fundist spurningarnar óþægilegar?
þegar ég sá þetta viðtal þá reyndi ég að rifja upp þau viðtöl sem maður hefur hlustað á hér heima á íslensku miðlunum og ég man ekki eftir að nokkur fréttamaður hafi spurt forsvarsmenn bankanna almennilega þessarra óþægilegu spurninga sem við almenningur eigum heimtingu á að fá svör við. Man einhver eftir slíku viðtali? Látið mig vita.

Þess má geta að ég get einnig borað svona í nefið, svona ykkur til upplýsinga ;)
Það er frábær mánudagur í dag, Sólin skín!!!!! ...eruð þið ekki búin að sakna hennar?
Það komu upp vangaveltur yfir lambalæri um helgina hvort það væri ekki bara allt í lagi að hafa sjónvarpslaust á fimmtudögum og í júlí eins og einu sinni. Okkur þótti það í raun ekkert tilt0kumál að fá smá frí frá imbanum. En svo kom upp sú hugmynd að hafa ekkert internet á fimmtudögum og í júlí. Það þarf ekki að nefna að það þótti EKKI sniðugt og í raun bara rugl! shit hvað maður er háður þessu.
Í dag er sunnudagur og ég var að borða bixímat. Egill í Silfrinu ræðir gengi krónunnar við mann og annan. Bróðir minn var að klára marathonhlaup í Berlín og mágkona mín er örugglega að versla í molli í Boston. Kærastinn minn er við það að setja tölvuna í kjöltuna í vinnuham og ég er að spá í að snyrta á mér neglurnar.
Er einhver heima???
...saknið þið mín? Er kominn tími á blogg frá Evé Slevane?
hóst hóst....hef ekkert getað bloggað....ég er búin að vera með svo mikla bloggflensu. Helstu einkenni eru stórkostleg leti og ritstífla af hæstu gráðu.
Ég vona að ég sé búin að jafna mig á þessu. Ég þarf líka að laga lúkkið á síðunni, það er alveg rosalega slappt og hreinlega ljótt.
En þangað til ætla ég að deila með ykkur lúðasögu af sjálfri mér.
Ég var að gera auglýsingu í síðustu viku og þurfti að nota orðið "nággrannar". Þór horfði yfir öxlina á mér og spurði hvort það ætti ekki bara að vera eitt "g" í "nággrannar" og ég var nú ekki á því. Ég ákvað því að gúggla orðið til að sjá hvort fleiri notuðu eitt eða tvö "g". Þegar ég gúgglaði orðið "nággrannar" með tveimur g-um þá komu BARA upp færslur af mínu eigin bloggi.
Ég er því ein um það að skrifa nággrannar vitlaust. Spurning hvort ég eigi að halda því áfram og vera svona sérvitringur eins og Halldór Laxness. Ég gæti til dæmis hætt að nota ybselon því það tekur meira pláss eða hætt að nota kommur. Eða að ég gæti tekið upp svona finnska íslensku, haft fleiri en einn staf þar sem á að vera extra áhersla.
Haalló krakkaar. Hvað segið þið goott.
...bara pæling
Ásgeir Valur sem var með mér í Kvennó er að taka þátt í List án landamærao og verkið hans er dýrast í heimi!!! Sjá hér
Fór á þessa mynd með Mumma bró, í Laugarásbíó minnir mig. Olivia náttúrulegasta bara mest gorgeous í heimi þarna. Í minningunni var hún stjarna sem kom til jarðar og varð ástfanginn og söng og dansaði, best að tékka á Wiki...Jámm hún var semsagt listagyðja sem kom til jarðar og varð ástfanginn - hver elskar ekki svona söguþráð.
Eigum við að ræða þetta eitthvað frekar?
Hver grét ekki yfir þessu atriði?
Þessi var meiriháttar, var í öllum barnaafmælum.
Þeir voru ýkt sætir:)
Það er ekki hægt annað en að líta upp til aðferðafræði Ferris
My name is ....
Vax on, vax off
What ever you do, don't fall asleep!
They're heeeeeeeere
...gæti haldið áfram en læt ykkur með þetta í bili :)
Mér finnst þetta skemmtilegt myndband, finnst það góð hugmynd að vera með þetta á léttu nótunum. Svo finnst mér snilld þegar diskókúlan dettur í lokin, svona eins og hann hafi drepið diskóið hehehe ;)
Vissir þú.....
.... að ef gínur í búðum væru raunverulegar konur væru þær of grannar til þess að fá blæðingar?
.... að af 3 milljörðum kvenna í heiminum eru aðeins u.þ.b. 10 súpermódel?
.... að Marlyn Monroe notaði stærð 14 (ameríska, sem er sama og 44 í evrópu) og hafði alla karlmenn í vasanum án þess að nokkur kvartaði yfir kílóunum á henni?
....að ef Barbie væri alvöru kona væri hún svo vansköpuð að hún yrði að ganga á fjórum fótum?
.... að konur eru að meðaltali 65 kíló (ekki hávaxnar) og nota stærðir 12 til 14 (amerískar = 42-44 í evrópu)?
.... að ein af hverjum 4 konum á háskólaaldri þjáist af einhverskonar átröskun?
.... að fyrirsæturnar í glanstímaritum og sjónvarpi eru lagaðar til í tölvu eða fiffaðar með lýsingu og ljósmyndatrikkum?
.... að rannsóknir hafa sýnt að fimm mínútna lestur glanstímarita veldur þungu skapi, skömm og sektarkennd hjá um 70%kvenna
.... að fyrirsætur fyrir 20 árum voru 8% léttari en konur almennt?
.... að fyrirsætur í dag eru 23% léttari en konur almennt?
Fegurð konunnar er ekki hægt að smækka niður í mælieiningar heldur felst hún í þeirri útgeislun sem ástin á sjálfri sér veitir hverri og einni.
-Fegurð felst í þroska og góðri sjálfsímynd og fer einungis batnandi með árunum.
-Spurningin er ekki um fatastærðir, kílóafjölda, hæð eða háralit, heldur er hún spurning um að læra að elska sjálfa sig frá toppi til táar.
-Hjálpumst að við að ýta undir góða sjálfsímynd hvorrar annarar. Við erum allar æði...........og ekki gleyma því!