4. febrúar 2008

Inflúensueva

Usss suss suss hvað þetta er ömurlegt hóst hóst (ái vont). Búin að liggja alla helgina í móki með hita og hósta...hver ykkar smitaði mig!?!?!
Fór á Pam Ann uppistandið á föstudaginn með Þór, Mumma og Ölmu en fyrst stúffuðum við okkur út af Sushi á Sushi Train amminamm. Svo fórum við á B5 og enduðum á Ölstofunni. Á leiðinni heim fannst mér soldið vont að anda að mér kalda loftinu, hvað var það? -12 er það ekki? Kannski ekki skrítið að daginn eftir vaknaði ég hríðskjálfandi með beinverki og aumingjaskap. Mér líður örlítið betur í dag en er samt með hósta dauðans og hausverk og er bara heima.

hmmm þetta er frekar lélegt blogg, mér dettur ekkert merkilegt í hug.



vista-blogga-senda blogg

3 Comments:

Nafnlaus said...

skelltu í þig hvítlauk og engiferrót og vonandi verðurðu ræt as rein!
d.

Véfrétt said...

Sveppagreifynjan er tilbúin með sjúkdómsgreiningu: Tarammm... sveppaveiki!

Farin á fund í nojuklúbbnum,

;-)

hds

Nafnlaus said...

Vonandi ertu að skríða saman.